Skráasöfn
Skráasöfn gera þér kleift að finna nýja netvarpsþætti og
gerast áskrifandi að þeim.
Til að opna skráasöfn skaltu ýta á
og velja
Tónlist
>
Podcasting
>
Skráasöfn
.
Innihald skráasafnanna breytist. Veldu tiltekna möppu og
uppfærðu hana (sérþjónusta). Þegar mappan skiptir um lit
skaltu ýta aftur á skruntakkann til að opna hana.
Skráasöfn geta innihaldið þá netvarpsþætti sem eru efstir
á vinsældarlistanum eða efnistengdar möppur.
Ýttu á skruntakkann til að opna tiltekna möppu. Þá birtist
listi yfir netvarpsþætti.
Til að gerast áskrifandi að þætti skaltu velja heiti hans og
ýta á skruntakkann. Þegar þú ert orðinn áskrifandi að
þáttum geturðu hlaðið þeim niður og spilað þá í
„Podcasts“.
Hægt er að bæta við nýju skráasafni eða möppu með því
að velja
Valkostir
>
Ný
>
Safnsíða
eða
Mappa
. Sláðu inn
heiti, vefslóð .opml (Outline Processor Markup Language)
og veldu
Lokið
.
Til að breyta möppunni sem þú valdir, veftengli eða
skráasafni skaltu velja
Valkostir
>
Breyta
.
Til að setja inn .opml-skrá sem vistuð er í tækinu skaltu
velja
Valkostir
>
Setja inn OPML-skrá
. Veldu stað fyrir
skrána og settu hana inn.
Hægt er að senda möppu sem margmiðlunarboð eða um
Bluetooth-tengingu með því að velja hana og síðan
Valkostir
>
Senda
.
Þegar þú færð skilaboð með .opml-skrá sem send er um
Bluetooth skaltu opna skrána og vista hana í
Móttekið
í
Skráasöfn
. Opnaðu
Móttekið
til að gerast áskrifandi að
einhverjum tenglum og setja þá í
Podcasts
.