Tónlistarspilari
styður skrár með endingunum AAC, AAC+,
eAAC+, MP3 og WMA.
Tónlistarspilari
styður þó ekki öll
skrársnið eða öll afbrigði skráarsniða.
Einnig er hægt að nota tónlistarspilarann til að hlusta á
netvarpsþætti (podcast). Netvarp (podcasting) er aðferð til
að dreifa hljóð- eða myndefni yfir internetið með
annaðhvort RSS- eða ATOM-tækni til spilunar í farsímum
og tölvum.
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum
hljóðstyrk. Stöðug áraun af háum hljóðstyrk getur skaðað
heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar
hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög
mikill.
Upplýsingar um hvernig setja skal lög inn á spilarann er að
finna í „Flutningur tónlistar“ á bls. 36.
Nánari upplýsingar um höfundarréttarvarnir er að finna í
„Stafræn réttindi“ á bls. 117.
Til að endurnýja safnið þegar lögin í tækinu hafa verið
uppfærð skaltu fara í tónlistarvalmyndina og velja
Valkostir
>
Uppfæra
.