Flutningur tónlistar úr tölvu
Hægt er að beita þremur mismunandi aðferðum við
flutning úr tölvu:
•
Til að sjá tækið á tölvunni sem ytri harðan disk sem
hægt er að flytja allar gagnaskrár í skaltu koma á
tengingu með samhæfri USB-snúru eða um Bluetooth.
Ef notuð er USB-snúra skaltu velja
Gagnaflutningur
til
að tengjast. Setja þarf samhæft minniskort í tækið.
•
Til að samstilla tónlistina við Windows Media Player
skaltu stinga USB-snúrunni í samband og velja
Miðlunarspilari
sem tengiaðferð. Setja þarf samhæft
minniskort í tækið.
•
Til að nota Nokia Music Manager í Nokia Nseries PC
Suite, skaltu stinga USB-snúrunni í samband og velja
PC Suite
sem tengiaðferð.
Til að breyta sjálfgefinni stillingu USB-tengingar skaltu
ýta á
og velja
Verkfæri
>
Tenging
>
USB-snúra
>
USB-stilling
.
Bæði Windows Media Player og Nokia Music Manager
í Nokia Nseries PC Suite eru til þess gerðir að flytja
tónlistarskrár eins og best verður á kosið. Upplýsingar um
hvernig flytja á tónlist með Nokia Music Manager, sjá
leiðarvísirinn með Nokia Nseries PCSuite.