 
Mikilvægar öryggisupplýsingar
Þegar þú stillir þráðlaust staðarnet í heimahúsi skaltu 
kveikja á dulkóðuninni í aðgangsstaðatækinu og svo 
í hinum tækjunum sem eru tengd við það. Nánari 
upplýsingar er að finna í fylgiskjölum tækjanna. Halda skal 
öllum númerum leyndum og geyma þau á öruggum stað 
fjarri tækjunum.
Upplýsingar um hvernig á að skoða eða breyta 
stillingunum fyrir netaðgangsstað í tækinu er að finna 
í „Aðgangsstaðir“ á bls. 127.
Ef þú notar sértæka stillingu til að búa til heimanet með 
samhæfu tæki skaltu nota eina af dulkóðunaraðferðunum 
í 
Öryggi þráðl. staðarnets
þegar þú stillir
netaðgangsstaðinn. Þetta minnkar líkurnar á að 
óviðkomandi komist inn á netið.
Tækið lætur þig vita ef annað tæki reynir að tengjast við 
það og heimanetið. Ekki samþykkja beiðnir um tengingu frá 
tækjum sem þú þekkir ekki.
Ef þú notar þráðlaust staðarnet í neti sem ekki er dulkóðað 
skaltu slökkva á samnýtingu Nokia N95 skráa með öðrum 
tækjum, eða velja að samnýta ekki einkaskrár. Til að breyta 
stillingunum, sjá „Stillingar heimanets“ á bls. 67.