 
Samnýting á netinu
Með forritinu
S
amn. á neti
er hægt að samnýta myndir og
myndskeið í samhæfum netalbúmum, bloggsíðum eða 
í annarri samnýtingarþjónustu á netinu. Hægt er að hlaða 
upp efni, vista færslur í vinnslu sem drög og halda áfram 
síðar, og skoða innihald albúmsins. Það fer eftir 
þjónustuveitunni hvaða tegundir efnis eru studdar.
Til að geta notað
S
amn. á neti
verður þú að gerast
áskrifandi að þjónustunni hjá þjónustuveitu sem annast 
slíka þjónustu. Venjulega er hægt að gerast áskrifandi að 
þjónustunni á vefsíðu þjónustuveitunnar. Þjónustuveitan 
gefur upplýsingar um áskrift að þjónustunni. Nánari 
upplýsingar um þjónustuveitur er að finna á hjálparsíðum 
á www.nseries.com/support eða vefsetri Nokia 
í heimalandi þínu.
Nánari upplýsingar um forritið er að finna í bæklingi um 
viðbótarforrit fyrir tækið á www.nseries.com/support eða 
vefsetri Nokia í heimalandi þínu.
Heimanet
Tækið styður UPnP (Universal Plug and Play). Með því að 
nota aðgangsstaðartæki eða beini fyrir þráðlaust staðarnet 
geturðu búið til heimanet og tengt samhæf UPnP-tæki 
við það, líkt og Nokia N95, samhæfa tölvu, samhæfan 
prentara, samhæft hljóðkerfi eða sjónvarp, eða hljóðkerfi/
sjónvarp sem er búið samhæfum móttakara fyrir 
þráðlaus kerfi.
Til að geta notað þráðlausa staðarnetsvalkostinn 
í Nokia N95 á heimaneti þarf þráðlaus staðarnetstenging 
að vera sett upp í heimahúsi og önnur UPnP-heimatæki 
að vera tengd við það.
Heimanetið notar öryggisstillingar þráðlausu 
staðarnetstengingarinnar. Notaðu heimanet á þráðlausu 
staðarneti með aðgangsstaðatæki og með kveikt 
á dulkóðun.
Hægt er að samnýta skrár sem eru vistaðar í
Gallerí
í öðrum UPnP-tækjum á heimaneti. Hægt er að stilla