Myndavél
Í Nokia N95 tækinu eru tvær myndavélar, ein með
hárri upplausn aftan á tækinu (aðalmyndavélin með
landslagsstillingu) og önnur með minni upplausn framan
á því (fremri myndavélin með andlitsmyndastillingu).
Hægt er að nota báðar myndavélarnar til að taka kyrr- og
hreyfimyndir.
Tækið styður allt að 2592x1944 punkta myndupplausn
í aðalmyndavélinni. Myndupplausnin í þessari handbók
getur virst önnur.
Myndirnar og hreyfimyndirnar vistast sjálfkrafa
í möppunni
Myndir
í
Gallerí
Myndir eru teknar á .jpeg
sniði. Hreyfimyndir eru teknar upp á MPEG-4-sniði með
endingunni .mp4 eða 3GPP-sniði með endingunni .3gp
(
Samnýting
). Sjá „Stillingar fyrir hreyfimyndir“ á bls. 58.
Ábending! Til að opna
Gallerí
og skoða myndirnar
sem búið er að taka skaltu ýta tvisvar á skoðunartakkann
á hlið tækisins.
Hægt er að senda myndir og hreyfimyndir
í margmiðlunarboðum, sem viðhengi í tölvupósti eða um
Bluetooth- tengingu, innrauða tengingu eða um þráðlausa
staðarnetstengingu. Einnig er hægt að hlaða þeim upp
í samhæft netalbúm. Sjá „Samnýting á netinu“ á bls. 66.