
Nokkrar myndir teknar í röð
Aðeins er hægt að velja myndaraðarstillinguna
í aðalmyndavélinni.
Til að stilla myndavélina þannig að hún taki a.m.k. sex
myndir í röð (ef nægilegt minni er til staðar) skaltu velja
Skipta yfir í myndaröð
>
Törn
til að taka sex myndir eða
myndatökutímabilið, á tækjastikunni. Myndafjöldinn
fer eftir því hversu mikið minni er laust.
Ýttu á myndatökutakkann til að taka sex myndir.
Ýttu á
Hætta við
til að hætta að taka myndir. Haltu
myndatökutakkanum niðri til að taka fleiri en sex myndir.
Slepptu myndatökutakkanum að myndatöku lokinni.
Hægt er að taka allt að 100 myndir, ef tiltækt minni leyfir.
Ef taka á myndir í tiltekinn tíma skaltu velja
Skipta yfir í myndaröð
og tímabil. Ýttu
á myndatökutakkann til að hefja myndatöku. Til að stöðva
myndatöku áður en tíminn rennur út skaltu ýta aftur
á tökutakkann.
Eftir að myndirnar hafa verið teknar eru þær birtar í töflu
á skjánum. Mynd er opnuð með því að ýta á
. Ef myndir
voru teknar í tímastillingu birtist síðasta myndin
á skjánum. Ýttu á
til að skoða hinar myndirnar.
Einnig er hægt að taka nokkrar myndir í röð með sjálfvirkri
myndatöku. Hámarksfjöldi mynda með sjálfvirkri
myndatöku er sex myndir.
Ýttu á myndatökutakkann til að fara aftur í myndgluggann
með myndaröðinni.

M
yndavél
56