Upptaka hreyfimynda
1
Opna skal linsulokið til að kveikja á aðalmyndvélinni.
Ef myndavélin er stillt á
Myndataka
skaltu velja
Hreyfimyndataka
á tækjastikunni.
2
Ýttu á myndatökutakkann til að hefja upptöku. Notaðu
skruntakkann til að taka upp í andlitsmyndastillingu.
Rauða upptökutáknið
birtist og hljóð heyrist sem
gefur til kynna að upptaka sé hafin.
3
Veldu
Stöðva
til að stöðva upptökuna. Hreyfimyndin
vistast sjálfkrafa í möppunni
Myndir
í
Gallerí
.
Sjá „Gallerí“ á bls. 59. Hámarkslengd
hreyfimyndarupptöku er 60 mínútur (ef minni
er nægjanlegt).
Hægt er að gera hlé á upptökunni hvenær sem er með því
að ýta á
Hlé
. Biðtáknið (
) blikkar á skjánum. Upptakan
stöðvast sjálfkrafa ef gert hefur verið hlé á henni og ekki
er stutt á neinn takka í eina mínútu. Ýttu á
Halda áfram
til að halda upptökunni áfram.
Notaðu súmmtakkann á hlið tækisins til að súmma
að eða frá.
Hægt er að gera breytingar á lita- og birtustillingum áður
en þú tekur upp hreyfimynd með því að nota skruntakkann
til að fletta gegnum tækjastikuna. Sjá „Grunnstillingar—
litur og lýsing stillt“ á bls. 54 og „Umhverfi“ á bls. 54.
Til að kveikja á fremri myndavélinni skaltu velja
Valkostir
>
Nota myndavél 2
.