 
Efni flutt úr öðru tæki
Hægt er að flytja efni eins og tengiliði og dagbækur úr 
samhæfu Nokia-tæki yfir í Nokia N95 með Bluetooth eða 
innrauðri tengingu. Tækið lætur þig vita ef hitt tækið 
er ekki samhæft.
 
Nokia N9
5
12
Það fer eftir gerð tækisins hvaða efni er hægt að flytja úr 
því. Ef hitt tækið styður samstillingu er einnig hægt að 
samstilla gögn á milli hins tækisins og Nokia N95.
Ef ekki er hægt að kveikja á hinu tækinu nema SIM-kort sé 
í því geturðu sett SIM-kortið þitt í það. Ótengda sniðið er 
sjálfkrafa valið þegar kveikt er á Nokia N95 tækinu án þess 
að SIM-kort sé í því.
Flutningur efnis
1
Til að nota forritið í fyrsta skipti í Nokia N95-tækinu 
skaltu velja það í 
Velkomin/n
-forritinu, ýta á
og
velja
Verkfæri
>
Hjálparforrit
>
Símaflutn.
. Ef forritið
hefur verið notað áður og þú vilt hefja nýjan flutning 
velurðu 
Símaflutningur
.
2
Veldu hvort þú vilt flytja gögnin um Bluetooth eða 
innrautt tengi. Bæði tækin verða að styðja gerðina.
3
Ef þú velur Bluetooth:
Veldu 
Halda áfram
til að láta Nokia N95 tækið leita að
Bluetooth tækjum. Veldu tækið sem flytja á efni af lista 
úr. Nokia N95 tækið biður þig að slá inn kóða. Sláðu inn 
kóða (1-16 tölustafi að lengd) og veldu 
Í lagi
. Sláðu inn
sama kóða í hitt tækið og veldu
Í lagi
. Þá eru tækin
pöruð. Sjá „Pörun tækja“ á bls. 30.
Tækið kann að senda forritið 
Símaflutningur
í suma
síma í skilaboðum.
Símaflutningur
er sett upp í hinu
tækinu með því að opna skilaboðin og fylgja 
leiðbeiningunum á skjánum.
Ef þú hefur valið innrauða tengingu skaltu tengja tækin 
saman. Sjá „Innrauð tenging“ á bls. 31.
4
Í Nokia N95 tækinu skaltu velja efnið sem þú vilt flytja 
úr hinu tækinu.
Efni er flutt úr minni hins tækisins á samsvarandi 
staðsetningu í Nokia N95. Flutningstíminn veltur 
á því gagnamagni sem er afritað. Hægt er að hætta 
við flutninginn og halda honum áfram síðar.
Ef hitt tækið styður samstillingu er hægt að halda 
gögnunum í nýjustu stöðu í báðum tækjum. Til að hefja 
samstillingu við samhæft Nokia-tæki velurðu 
Símar
,
skrunar að tækinu og velur
Valkostir
>
Samstilla
.
Fylgdu fyrirmælunum á skjánum.
Samstillt er í báðar áttir og gögnin verða eins í báðum 
tækjunum. Ef hlut er eytt úr öðru hvoru tækinu er því 
líka eytt úr hinu tækinu við samstillingu; ekki er hægt 
að endurheimta eydda hluti með samstillingu.
Hægt er að skoða skrá yfir fyrri flutning með því að velja
Flutningsskrá
.