Nokia N95 - Myndsímtöl

background image

Myndsímtöl

Í myndsímtali (sérþjónusta) getur þú og viðmælandi þinn
séð rauntíma hreyfimynd af hvor öðrum. Viðmælandi
þinn sér þá hreyfimyndina sem myndavélin þín tekur.

Til að geta hringt myndsímtal þarftu USIM-kort og að vera
innan þjónustusvæðis UMTS-símkerfis. Þjónustuveitan
þín gefur upplýsingar um framboð og áskrift að
myndsímtölum.

Aðeins er hægt að koma á myndsímtali við einn aðila
í einu. Hægt er að koma á myndsímtali við samhæft
tæki eða ISDN-tengd tæki. Ekki er hægt að koma
á myndsímtölum þegar annað símtal, myndsímtal eða
gagnasímtal er í gangi.

Tákn:

Tækið þitt er ekki

að taka við hreyfimynd
(annaðhvort sendir
viðmælandinn ekki
hreyfimyndina eða
símkerfið sendir hana ekki).

Þú hefur hafnað

myndsendingu úr tækinu
þínu. Upplýsingar um hvernig
á að senda kyrrmynd í stað
hreyfimyndar er að finna
í „Símtöl“ á bls. 124.

Jafnvel þó þú hafnir myndsendingu í myndsímtali
verður tekið gjald fyrir símtalið sem myndsímtal.
Fáðu verðupplýsingar hjá þjónustuveitunni.

1

Til að koma á myndsímtali skaltu slá inn númerið
í biðstöðu eða velja

Tengiliðir

og svo tengilið.

2

Veldu

Valkostir

>

Hringja

>

Myndsímtal

.

Fremri myndavélin er sjálfgefið valin í myndsímtali.
Ef linsulokan er opin er aðalmyndavélin aftur á móti notuð.
Það getur tekið nokkurn tíma að koma á myndsímtali.

Bíð eftir hreyfimynd

birtist. Ef ekki tekst að koma

á tengingu (t.d. ef símkerfið styður ekki myndsímtöl eða
móttökutækið er ekki samhæft), er spurt hvort þú viljir
hringja venjulegt símtal eða senda textaskilaboð eða
margmiðlunarboð í staðinn.

Myndsímtal er í gangi þegar þú getur séð tvær
hreyfimyndir og heyrt hljóð úr hátalaranum.
Viðmælandinn getur hafnað myndsendingu (

) og

þá heyrir þú aðeins í honum og sérð að auki kyrrmynd eða
gráan bakgrunn.

Til að skipta milli hreyfimyndar og hljóðs skaltu velja

Valkostir

>

Virkja

eða

Óvirkja

>

Hreyfimynd

,

Hljóð

eða

Hljóð & hreyfimynd

.

Ýttu á

eða

til að súmma myndina af þér að eða frá.

Hægt er að víxla myndunum á skjánum með því að velja

Valkostir

>

Víxla myndum

.

background image

Símt

öl

102

Til að beina hljóðinu í samhæft Bluetooth-höfuðtól sem
tengt er við tækið skaltu velja

Valkostir

>

Virkja höfuðtól

.

Til að beina hljóðinu aftur í hátalara tækisins skaltu velja

Valkostir

>

Virkja símtól

.

Meðan myndsímtal fer fram er hljóðstyrkurinn stilltur með
hljóðstyrkstakkanum á hlið tækisins.

Ef nota á aðalmyndvélina til að senda hreyfimynd skaltu
opna linsulokuna baka til. Til að skipta yfir í fremri
myndavélina skaltu velja

Valkostir

>

Nota myndavél 2

.

Til að skipta aftur í yfir í aðalmyndavélina skaltu velja

Valkostir

>

Nota aðalmyndavél

.

Myndsímtalinu er lokið með því að ýta á

.