 
Forsendur fyrir samnýtingu 
hreyfimynda
Þar sem nauðsynlegt er að koma á sambandi við 
UMTS-símkerfi áður en hægt er að nota 
Samn. hreyfim.
veltur það hvort þú getir notað
Samn. hreyfim.
á því hvort
slíkt símkerfi sé til staðar. Upplýsingar um farsímakerfið, 
þjónustuna og gjald fyrir hana fást hjá þjónustuveitunni.
Til að hægt sé að nota
Samn. hreyfim.
þarftu að gera
eftirfarandi:
•
Gakktu úr skugga um að tækið þitt sé sett upp fyrir 
tengingar á milli einstaklinga. Sjá „Stillingar“ á bls. 103.
•
Gakktu úr skugga um að þú hafir virka UMTS-tengingu 
og sért innan dreifisvæðis UMTS-símkerfis. 
Sjá „Stillingar“ á bls. 103. Ef þú byrjar samnýtinguna 
meðan þú ert innan UMTS-farsímakerfis og skipt er yfir 
í GSM-farsímakerfi, lýkur samnýtingunni en símtalið 
heldur áfram. Ekki er hægt að hefja 
Samn. hreyfim.
nema þú sért innan UMTS-þjónustusvæðis.
•
Gakktu úr skugga um að bæði sendandinn og 
viðtakandinn séu skráðir á UMTS-símkerfið. Ef þú býður 
einhverjum í samnýtingu og tæki viðkomandi er ekki 
innan UMTS-þjónustusvæðis eða býður ekki upp 
á
Samn. hreyfim.
eða er stillt á tengingu á milli
einstaklinga veit viðkomandi ekki að þú sért að senda 
honum boð. Þú færð villuboð um að viðtakandinn geti 
ekki samþykkt boðið.
 
Símt
öl
103