 
Stillingar
Stillingar fyrir tengingar á milli einstaklinga
Tenging á milli einstaklinga er einnig þekkt undir heitinu 
SIP-tenging (Session Initiation Protocol). SIP-sniðstillingar 
þurfa að hafa verið valdar í tækinu áður en þú getur notað 
Samn. hreyfim.
.
SIP-stillingarnar fást hjá þjónustuveitunni. Nauðsynlegt 
er að vista þær í tækinu. Þjónustuveitan gæti sent þér 
stillingarnar í ljósvakaboðum eða gefið þér upp 
nauðsynlegar stillingar.
Ef þú veist SIP-vistfang viðtakandans getur þú slegið 
það inn á tengiliðaspjald hans. Opnaðu 
Tengiliðir
í aðalvalmyndinni og síðan tengiliðarspjaldið (eða 
búðu til nýtt spjald fyrir viðkomandi). Veldu 
Valkostir
>
Bæta við upplýsing.
>
SIP
eða
Samnýttur skjár
. Sláðu inn
SIP-vistfangið á forminu notandanafn@vistfang 
(hægt er að nota IP-tölu í stað vistfangs).
Ef þú veist ekki SIP-vistfang viðkomandi geturðu einnig 
notað vistað símanúmer hans, ásamt landsnúmerinu 
(t.d. +354) til að deila hreyfimynd (ef þjónustuveitan 
styður það).
UMTS-tengistillingar
Settu upp UMTS-tenginguna þína á eftirfarandi hátt:
•
Hafðu samband við þjónustuveituna þína til að gerast 
áskrifandi að UMTS-þjónustunni.
•
Gakktu úr skugga um að 
UMTS-aðgangsstaðastillingarnar hafi verið rétt valdar. 
Nánari upplýsingar er að finna í „Tenging“ á bls. 126.