Skilaboð
87
Skilaboð
Ýttu á
og veldu
Skilaboð
(sérþjónusta).
Aðeins tæki með samhæfar aðgerðir geta tekið á móti
og birt margmiðlunarboð. Útlit skilaboða getur verið
breytilegt eftir móttökutækinu.
Skilaboð eru búin til með því að velja
Ný skilaboð
.
Skilaboð
inniheldur eftirfarandi möppur:
Innhólf
—Inniheldur móttekin skilaboð, fyrir
utan tölvupóstskeyti og skilaboða frá endurvarpa.
Tölvupóstskeyti eru vistuð í
Pósthólf
.
Mínar möppur
—Til að raða skilaboðum í möppur.
Ábending! Hægt er að nota textana
í sniðmátamöppunni til að komast hjá því að endurskrifa
skilaboð sem eru send oft. Einnig er hægt að búa til og
vista eigin sniðmát.
Pósthólf
—Hér er hægt að tengjast við ytra pósthólf
til að sækja nýjan tölvupóst og skoða eldri tölvupóst án
tengingar. Sjá „Tölvupóstur“ á bls. 94.
Uppköst
—Inniheldur drög að skilaboðum sem hafa
ekki verið send.
Sendir hlutir
—Inniheldur síðustu skilaboðin sem
hafa verið send, fyrir utan þau sem hafa verið send um
Bluetooth eða innrautt tengi. Upplýsingar um hvernig
á að breyta fjölda vistaðra skilaboða er að finna í „Aðrar
stillingar“ á bls. 97.
Úthólf
—Skilaboð sem bíða þess að verða send eru
vistuð tímabundið í úthólfinu, t.d. þegar tækið er utan
þjónustusvæðis.
Tilkynningar
—Hægt er að biðja símkerfið að senda
skilatilkynningar fyrir send texta- og margmiðlunarboð
(sérþjónusta).
Til að slá inn og senda þjónustubeiðnir til þjónustuveitu
(einnig þekktar sem USSD-skipanir), líkt og skipanir
um að virkja sérþjónustu, skaltu velja
Valkostir
>
Þjónustuskipun
í aðalvalmynd
Skilaboð
.
Með
Upplýs. frá endurv.
(sérþjónusta) getur þú fengið
skilaboð frá þjónustuveitunni um mismunandi efni, líkt
og veður og umferð. Upplýsingar um hvaða efni eru í boði
og efnisnúmer fást hjá þjónustuveitunni. Í aðalvalmynd
Skilaboð
skaltu velja
Valkostir
>
Upplýs. frá endurv.
.
Ekki er hægt að fá upplýsingar frá endurvarpa
í UMTS-símkerfum. Pakkagagnatenging getur
valdið því að upplýsingar frá endurvarpa berist ekki.
Skilaboð
88