Tengistillingar
Stillingum fyrir móttekinn tölvupóst er breytt með því
að velja
Móttekinn póstur
og úr eftirfarandi:
Notandanafn
—Til að slá inn notandanafn þitt sem
þjónustuveitan þín lætur þér í té.
Lykilorð
—Til að slá inn lykilorð. Ef þú fyllir ekki út þennan
reit verður beðið um lykilorðið þegar þú reynir að tengjast
við ytra pósthólfið.
Miðlari fyrir innpóst
—Til að slá inn IP-tölu eða heiti
hýsimiðlarans sem tekur við tölvupóstinum.
Aðg.staður í notkun
—Til að velja internetaðgangsstað.
Sjá „Aðgangsstaðir“ á bls. 127.
Nafn pósthólfs
—Til að slá inn heiti fyrir pósthólfið.
Tegund pósthólfs
—Til að tilgreina samskiptareglur
tölvupósts sem þjónustuveita ytra pósthólfsins mælir með.
Valkostirnir eru
POP3
og
IMAP4
. Ekki er hægt að breyta
þessum stillingum.
Öryggi (gáttir)
—Til að velja öryggisvalkostinn sem
er notaður til að tryggja öryggi tengingar við ytra
pósthólfið.
Gátt
—Til að tilgreina gátt fyrir tenginguna.
Örugg APOP-innskr.
(aðeins fyrir POP3)—Til að nota með
POP3-samskiptareglunum til að dulkóða sendingu
lykilorða á ytri tölvupóstþjón þegar tengst er við
pósthólfið.
Stillingum fyrir móttekinn tölvupóst er breytt með því að
velja
Sendur póstur
og úr eftirfarandi:
Tölvupóstfangið mitt
—Til að slá inn tölvupóstfangið sem
þjónustuveitan lét þér í té.
Miðlari fyrir útpóst
—Til að slá inn IP-tölu eða heiti
hýsimiðlarans sem sendir tölvupóstinn. Hugsanlega getur
þú eingöngu notað útmiðlara þjónustuveitunnar.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Stillingarnar fyrir
Notandanafn
,
Lykilorð
,
Aðg.staður í notkun
,
Öryggi (gáttir)
og
Gátt
eru eins og
í
Móttekinn póstur
.