 
Leiðarlýsing
Veldu
Leiðsögn
til að nota leiðarlýsinguna. Kveiktu á
leiðarlýsingunni utandyra. Ef kveikt er á henni innandyra er 
ekki víst að GPS-móttakarinn fái nauðsynlegar upplýsingar 
frá gervihnöttunum.
Við leiðarlýsingu er notaður snúningsáttaviti á skjá 
tækisins. Rauð kúla sýnir í hvaða átt áfangastaðurinn er og 
áætluð vegalengd þangað birtist á áttavitanum.
Leiðarlýsingin sýnir beinustu leiðina og stystu 
vegalengdina til áfangastaðarins, mælda í beinni línu. Ekki 
er tekið tillit til hindrana á leiðinni, svo sem bygginga og 
náttúrulegra hindrana. Og ekki er tekið tillit til 
hæðarmismunar þegar fjarlægðin er reiknuð út. 
Leiðarlýsingin er aðeins virk þegar þú ert á ferð.
Til að stilla á áfangastað skaltu velja
Valkostir
>
Velja
ákvörðunarstað
og leiðarmerki sem áfangastað eða slá inn
lengdar- og breiddargráður. Veldu
Hætta leiðsögu
til að
hreinsa út áfangastaðinn.