 
Kort
. Með forritinu
Kort
geturðu séð
hvar á kortinu þú ert staddur, skoðað kort yfir ýmsar borgir 
og lönd, leitað að heimilisföngum og ýmsum áhugaverðum 
stöðum, gert leiðaráætlanir milli staða, séð 
umferðarupplýsingar og vistað staði sem leiðarmerki og 
sent þá í samhæf tæki.
Einnig geturðu keypt viðbótarþjónustu, svo sem 
borgarleiðsögn og nákvæma aksturs- og gönguleiðsögn 
með raddstýringu og upplýsingaþjónustu um umferðina.
Kort
notar GPS. Hægt er að velja staðsetningaraðferð fyrir
tækið með stillingum þess. Sjá „Staðsetning“ á bls. 124. 
Til að fá sem nákvæmastar upplýsingar um staðsetningu 
skaltu nota annaðhvort innbyggða GPS-móttakarann eða 
ytri GPS-móttakarann.
Þegar þú notar
Kort
í fyrsta skipti þarftu e.t.v. að tilgreina
internetaðgangsstað til að geta hlaðið niður 
kortaupplýsingum um þann stað sem þú ert staddur á. 
Hægt er að breyta sjálfgefnum aðgangsstað síðar með því 
að velja 
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Sjálfg. aðgangsstaður
(sést aðeins ef þú ert nettengdur).
Þegar kort er skoðað í Kortum er kortaupplýsingum hlaðið 
sjálfvirkt niður í tækið af netinu. Nýju korti er aðeins hlaðið 
niður ef farið er inn á svæði sem ekki er á kortunum sem 
búið er að hlaða niður.
Nánast öll stafræn kort eru ónákvæm og ófullnægjandi að 
einhverju leyti. Aldrei skal treysta eingöngu á kort sem 
hlaðið hefur verið niður til notkunar með þessu tæki.
Niðurhal á kortum getur falið í sér stórar gagnasendingar 
um farsímakerfi þjónustuveitunnar. Upplýsingar um 
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Ábending! Einnig er hægt að hlaða niður kortum með
tengingu fyrir þráðlaust staðarnet eða um internetið með 
því að nota Nokia MapLoader. Sjá „Kortum hlaðið niður“ á 
bls. 74.
Ef þú vilt að kortaforritið komi nettengingu á sjálfkrafa 
þegar það er ræst skaltu velja 
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Nettenging við ræsingu
>
Já
í
forritinu.
Hægt er að fá tilkynningu senda þegar tækið finnur 
símkerfi utan heimasímkerfisins með því að velja 
 
St
aðs
e
tning
73
Valkostir
>
Verkfæri
>
Stillingar
>
Internet
>
Viðvörun
um reiki
>
Kveikt
(sést aðeins þegar þú ert nettengdur).
Þjónustuveitan þín gefur nánari upplýsingar (m.a. um 
reikigjöld).