Nokia N95 - Leiðsögn

background image

Leiðsögn

Hægt er að kaupa raddstýrða aksturs- og gönguleiðsögn
eða einungis gönguleiðsögn með því að velja

Valkostir

>

Aukakostir

>

0\tHandbækur

eða

2\tGanga

. Hægt er að

greiða hana með kreditkorti eða láta skuldfæra upphæðina
á símareikningnum (ef farsímakerfið styður slíka þjónustu).

Akstursleiðsögn

Þegar akstursleiðsögn er notuð í fyrsta skipti er beðið um
að þú veljir tungumál raddstýringarinnar og sækir
raddstýringarskrár viðkomandi tungumáls af netinu. Einnig
er hægt að hlaða niður raddleiðsagnarskrám með því að
nota Nokia Map Loader. Sjá „Nokia Map Loader“ á bls. 74.

Hægt er að skipta um tungumál seinna í kortavalmyndinni
með því að velja

Valkostir

>

Verkfæri

>

Stillingar

>

Leiðsögn

>

Raddleiðsögn

og tungumál, og hlaða niður

raddleiðsagnarskránum fyrir viðkomandi tungumál.

background image

St

aðs

e

tning

77

Gönguleiðsögn

Gönguleiðsögn er á margan hátt frábrugðin
akstursleiðsögn: Í gönguleiðum er ekki tekið tillit til
hugsanlegra aksturstakmarkanna, svo sem
einstefnuaksturs og reglna um beygjubann, og þær ná til
svæða fyrir gangandi vegfarendur og almenningsgarða.
Í þeim er lögð áhersla á göngustíga og sveitavegi, en
þjóðvegum og hraðbrautum er sleppt. Hámarkslengd
gönguleiðar er 50 kílómetrar (31 míla) og
hámarksgönguhraði er 30 km/klst. (18 mílur/klst.). Ef farið
er yfir hámarkshraða stöðvast leiðsögnin, en hún hefst á ný
um leið og gengið er á réttum hraða.

Gönguleiðsögn býður ekki upp á „skref-fyrir-skref“
leiðsögn eða raddleiðsögn. Þess í stað vísar stór ör leiðina
og lítil ör neðst á skjánum bendir beint á áfangastað.
Gervitunglamynd er aðeins í boði í gönguleiðsögn.

Leiðsögn til áfangastaðar

Til að hefja leiðsögn til tiltekins áfangastaðar með GPS
skaltu velja einhvern stað á kortinu eða í leitarniðurstöðum
og

Valkostir

>

Aka til

eða

Ganga þangað

.

Til að skipta milli skjámynda meðan leiðsögn fer fram
flettirðu til vinstri eða hægri.

Til að stöðva leiðsögn ýtirðu á

Stöðva

.

Til að velja leiðsagnarvalkosti ýtirðu á

Valkostir

meðan

leiðsögn fer fram. Ef akstursleiðsögn er virk birtist valmynd
með tólf valkostum á skjánum.

Hver takki á takkaborðinu samsvarar einum valkosti á
skjánum. Ýttu á 2 til að endurtaka raddskipun, 3 til að
skipta á milli dag- og næturstillingar, og 4 til að vista
núverandi stað o.s.frv.