Nokia N95 - Vottorðastjórnun

background image

Vottorðastjórnun

Stafræn vottorð tryggja ekki öryggi heldur eru þau notuð
til að staðfesta uppruna hugbúnaðar.

Í aðalskjá vottorðastjórnunar er hægt að opna lista yfir
heimildavottorð sem eru vistuð í tækinu þínu. Ýttu á

til

að skoða lista yfir persónuleg vottorð, ef hann er til staðar.

Nota ætti stafræn vottorð ef tengjast á netbanka, öðru
vefsvæði eða miðlara þar sem trúnaðarupplýsingar eru
sendar. Einnig ætti að nota þau til að minnka hættuna
á vírusum eða öðrum skaðlegum hugbúnaði og tryggja
áreiðanleika hugbúnaðar sem hlaðið er niður af netinu
og settur upp.

background image

St

il

lingar

123

Mikilvægt: Þó að notkun vottorða dragi verulega

úr þeirri áhættu sem fylgir fjartengingum og uppsetningu
hugbúnaðar verður að nota þau rétt svo að aukið öryggi
fáist. Tilvist vottorðs er engin vörn ein og sér.
Vottorðastjórinn verður að vera með rétt, sannvottuð eða
tryggileg vottorð svo að aukið öryggi fáist. Vottorð eru
bundin tilteknum tíma. Ef textinn „Útrunnið vottorð“ eða
„Vottorðið hefur enn ekki tekið gildi“ birtist þó svo að
vottorðið ætti að vera gilt skal athuga hvort rétt dag- og
tímasetning er á tækinu.

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga úr
skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess
og að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Upplýsingar um vottorð skoðaðar—áreiðanleiki
kannaður

Þú getur aðeins verið viss um rétt auðkenni miðlara
þegar búið er að kanna undirskrift og gildistíma
miðlaravottorðsins.

Látið er vita ef uppruni miðlarans er ekki staðfestur
eða ef tækið inniheldur ekki er rétt öryggisvottorð.

Upplýsingar um vottorð eru skoðaðar með því að fletta
að því og velja

Valkostir

>

Upplýs. um vottorð

. Þegar

upplýsingar um vottorð eru opnaðar er gildi vottorðsins
kannað og einhver af eftirfarandi athugasemdum
getur birst:

Vottorði ekki treyst

—Þú hefur ekki valið vottorðið

fyrir nein forrit. Sjá „Trauststillingum breytt“ á bls. 123.

Vottorð útrunnið

—Gildistími vottorðsins hefur

runnið út.

Vottorð ekki enn gilt

—Gildistími vottorðsins er ekki

runninn upp.

Vottorð skemmt

—Ekki er hægt að nota vottorðið.

Hafðu samband við útgefanda vottorðsins.

Trauststillingum breytt

Áður en vottorðsstillingum er breytt þarf að ganga
úr skugga um að örugglega megi treysta eiganda þess
og að það tilheyri í raun eigandanum sem tilgreindur er.

Flettu að heimildavottorði og veldu

Valkostir

>

Stillingar f. traust

. Listi, sem fer eftir vottorðinu sem

valið er, birtist yfir forritin sem geta notað það. Dæmi:

Symbian-uppsetning

:

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýs Symbian-stýrikerfisforrits.

Internet

:

—Vottorðið getur sannreynt miðlara.

Uppsetning forrita

:

—Vottorðið getur sannreynt

uppruna nýrra Java

TM

-forrita.

Veldu

Valkostir

>

Breyta still. f. traust

til að breyta

gildinu.