Pakkagögn
Pakkagagnastillingarnar hafa áhrif á alla aðgangsstaði
sem nota pakkagagnatengingar.
Pakkagagnatenging
—Ef þú velur
Ef samband næst
og tækið er tengt símkerfi sem styður pakkagögn skráir
það sig á pakkagagnasímkerfið. Fljótlegra er að ræsa
pakkagagnatengingu (t.d. til að senda og sækja tölvupóst).
Ef ekkert pakkagagnasamband er til staðar reynir tækið
reglulega að koma á pakkagagnatengingu. Ef þú velur
Ef með þarf
notar tækið aðeins pakkagagnatengingu
ef þú ræsir forrit eða aðgerð sem þarfnast hennar.
Aðgangsstaður
—Heiti aðgangsstaðarins er nauðsynlegt
til að nota tækið sem pakkagagnamótald fyrir tölvu.
Háhraða pakkagögn
—Kveikir eða slekkur
á HSDPA-þjónustu (sérþjónusta) í UMTS-símkerfum.
Nánari upplýsingar um HSDPA eru í „Flýtiniðurhal“
á bls. 13.
St
il
lingar
130