Nokia N95 - Útliti tækisins breytt

background image

Útliti tækisins breytt

Til að breyta útliti skjásins, t.d. veggfóðri og táknum, skaltu
ýta á

og velja

Verkfæri

>

Stillingar

>

Almennar

>

Sérstillingar

>

Þemu

.

Til að breyta þema sem notað er fyrir öll forritin í tækinu
skaltu velja

Þemu

>

Almennt

. Til að breyta þema tiltekins

forrits skaltu velja forritið á aðalvalmyndinni.

Til að skoða þema áður en þú velur að nota það skaltu velja

Valkostir

>

Skoða áður

. Til að þemað verði virkt skaltu

velja

Valkostir

>

Velja

. Þemað sem er virkt er táknað

með

.

Þemu á samhæfu minniskorti (ef það er í tækinu)
eru táknuð með

. Ekki er hægt að velja þemun

á minniskortinu ef minniskortið er ekki í tækinu. Ef þú vilt
nota þemun sem eru vistuð á minniskortinu án þess að
minniskortið sé í tækinu skaltu fyrst vista þau í minni þess.

Til að breyta útliti aðalvalmyndarinnar skaltu velja

Þemu

>

Valmynd

.

Til að koma á nettengingu og hlaða niður fleiri þemum
í

Almennt

eða

Valmynd

skaltu velja

Sækja þemu

(sérþjónusta).

Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst

og sem veitir nægilegt öryggi og vörn gegn skaðlegum
hugbúnaði.

Til að breyta veggfóðri og orkusparnaði í núverandi
þema skaltu velja

Þemu

>

Veggfóður

til að breyta

bakgrunnsmynd á skjánum í biðham eða

Orkusparn.

til að breyta orkusparnaðinum sem birtist á skjánum
í biðham. Sjá einnig upplýsingar um stillingar fyrir
orkusparnað í „Skjár“ á bls. 119.