Snið án tengingar
Sniðið
Ótengdur
gerir þér kleift að nota símann án þess
að tengjast við símkerfið. Þegar þú virkjar sniðið
Ótengdur
er slökkt á tengingunni við þráðlausa símkerfið og það
gefið til kynna með
í sendistyrksvísinum. Lokað er
á allar þráðlausar sendingar til og frá tækinu. Ef þú reynir
að senda skilaboð er þeim komið fyrir í úthólfinu þaðan
sem þau eru send síðar.
Þegar sniðið
Ótengdur
er virkt er hægt að nota tækið
án (U)SIM-korts.
Mikilvægt: Í ótengdu sniði er ekki hægt að hringja,
svara símtölum eða nota aðra valkosti þar sem þörf er
á tengingu við farsímakerfi. Áfram kann að vera hægt að
hringja í það neyðarnúmer sem er forritað í tækið. Eigi að
hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina með því að
skipta um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn
lykilnúmerið.
Þegar þú hefur valið sniðið
Ótengdur
geturðu áfram notað
þráðlaust staðarnet, t.d. til þess að lesa tölvupóst eða vafra
á internetinu. Mundu að fara að öllum viðeigandi
öryggisreglum þegar þú kemur á og notar þráðlausa
staðarnetstengingu. Sjá „Þráðlaust staðarnet“ á bls. 25.
Einnig er hægt að nota Bluetooth-tengingu í sniðinu
Ótengdur
. Sjá „Bluetooth-tengingar“ á bls. 28.
Slökkt er á sniðinu
Ótengdur
með því að ýta á rofann
og velja annað snið. Þá verða þráðlaus samskipti aftur
möguleg (ef nægur sendistyrkur er fyrir hendi).
3-D tónar
Ýttu á
og veldu
Verkfæri
>