Þráðlausar staðarnetstengingar
Til að geta notað þráðlaust staðarnet þarftu að búa
til netaðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet. Notaðu
aðgangsstaðinn fyrir aðgerðir sem krefjast tengingar við
internetið. Sjá „Aðgangsstaðir fyrir þráðlaus staðarnet“
á bls. 26.
Mikilvægt: Alltaf skal virkja eina af tiltækum
dulkóðunaraðferðum til að auka öryggi þráðlausrar
staðarnetstengingar. Notkun dulkóðunar dregur úr
hættunni á því að einhver fái aðgang að gögnunum þínum
án heimildar.
Þráðlausri staðarnetstengingu er komið á þegar þú býrð
til gagnatengingu með því að nota netaðgangsstað.
Þráðlausa staðarnetstengin er rofin þegar þú rýfur
gagnatenginguna. Upplýsingar um hvernig rjúfa
á tenginguna, sjá „Stjórnandi tenginga“ á bls. 27.
Hægt er að nota þráðlaust staðarnet meðan á símtali
stendur eða pakkagagnatenging er virk. Aðeins er hægt
að tengjast við einn aðgangsstað fyrir þráðlaust staðarnet
í einu, en nokkur forrit geta hins vegar notað sama
aðgangsstaðinn.
Te
n
g
ingar
26
Hægt er að nota þráðlausa staðarnetstengingu þrátt fyrir
að sniðið
Ótengdur
hafi verið valið. Mundu að fara að
öllum viðeigandi öryggisreglum þegar þú kemur á og notar
þráðlausa staðarnetstengingu.
Ábending! Til að sjá MAC-vistfangið sem auðkennir
tækið þitt skaltu slá inn *#62209526# þegar tækið er í
biðstöðu.