 
Bluetooth-tengingar
Hægt er að tengjast þráðlaust við samhæf tæki með 
Bluetooth. Samhæf tæki eru m.a. farsímar, tölvur og 
aukabúnaður eins og höfuðtól og bílbúnaður. Hægt er að 
nota Bluetooth til að senda myndir, hreyfimyndir, tónlist, 
hljóðskrár og minnismiða; til að tengjast þráðlaust við 
samhæfar tölvur (t.d. til að flytja skrár) eða til að tengjast 
við samhæfan prentara til að prenta myndir með 
Myndprentun
. Sjá „Prentun mynda“ á bls. 65.
Þar sem tæki með Bluetooth-tækni nota útvarpsbylgjur til 
samskipta þurfa tækin ekki að vera í beinni sjónlínu hvert 
við annað. Nóg er að tækin séu í innan við 10 metra 
(33 feta) fjarlægð hvort frá öðru. Truflanir geta þó orðið 
á tengingunni vegna hindrana eins og veggja eða annarra 
raftækja.
Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2,0 sem 
styður eftirfarandi snið: Advanced Audio Distribution 
Profile, Audio/Video Remote Control Profile, Basic Imaging 
Profile, Basic Printing Profile, Dial-up Networking Profile, 
File Transfer Profile, Hands-Free Profile, Headset Profile, 
Human Interface Device Profile, Object Push Profile, SIM 
Access profile og Synchronisation Profile. Til að tryggja 
samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni 
skal nota aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir 
þessa tegund. Leita skal upplýsinga hjá framleiðendum 
annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Takmarkanir kunna að vera á notkun Bluetooth-tækni 
á sumum stöðum. Kanna skal það hjá yfirvöldum 
á staðnum eða þjónustuveitunni.
Aðgerðir sem nota Bluetooth-tækni eða leyfa slíkum 
aðgerðum að keyra í bakgrunni meðan aðrar aðgerðir eru 
notaðar krefjast aukinnar rafhlöðuorku og minnka endingu 
rafhlöðunnar. 
Ekki er hægt að nota Bluetooth þegar tækið er læst. Nánari 
upplýsingar um læsingu tækisins, sjá „Sími og SIM-kort“, 
á bls. 121.