Stafræn réttindi
Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir
stafrænnar réttindatækni (DRM) til að vernda hugverkarétt
sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar mismunandi
gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni.
Með þessu tæki er hægt að fá aðgang að efni sem verndað
er með WMDRM 10, OMA DRM 1.0 og OMA DRM 2.0.
Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær ekki að verja efni
kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks hugbúnaðar
til að opna nýtt efni sem er varið með stafrænum
réttindum sé endurvakin. Slíkt kann einnig að hindra
endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar
í tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif
á notkun efnis sem er verndað með öðrum gerðum
stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki er verndað
með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir
opnunarlykill sem tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM varið efni skal nota
öryggisafritunaraðgerðina í Nokia Nseries PC Suite til að
taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.
Ef notaðar eru aðrar flutningsaðferðir er ekki víst að
opnunarlyklarnir, sem þarf að endursetja ásamt OMA
DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið, verði
fluttir með efninu. Einnig gæti þurft að endursetja
opnunarlyklana ef skrár í tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni
ásamt opnunarlyklum þess ef minni tækisins er forsniðið.
Einnig gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef skrár
í tækinu skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið
getur það takmarkað möguleikann á að nota efnið aftur.
Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.
Sumir opnunarlyklar kunna að vera tengdir tilteknu
SIM-korti og aðeins er hægt að fá aðgang að varða efninu
ef SIM-kortið er í tækinu.
Ve
rk
fæ
ri
118
Til að skoða opnunarlykla stafrænna réttinda sem eru
vistaðir í tækinu skaltu ýta á
, velja
Forrit
>
Miðlar
>
Opn.lyklar
og úr eftirfarandi:
Gildir lyklar
—Til að skoða lykla sem eru tengdir einni eða
fleiri skrám og lykla sem ekki hafa enn tekið gildi.
Ógildir lyklar
—Til að skoða lykla sem ekki eru gildir;
notkunartímabil miðlunarskráarinnar er útrunnið eða varin
miðlunarskrá er til staðar í tækinu en hún er ekki tengd
opnunarlykli.
Lyklar án notk.
—Til að skoða lykla sem ekki eru tengdir
neinni skrá í tækinu.
Til að kaupa aðgang að skrá í fleiri skipti eða til að
framlengja notkunartíma hennar skaltu velja ógildan
opnunarlykil og
Valkostir
>
Sækja nýjan lykil
. Ekki
er hægt að uppfæra opnunarlykla ef móttaka
vefþjónustuboða er óvirk. Sjá „Vefþjónustuboð“ á bls. 90.
Nákvæmar upplýsingar um skrá, t.d. gildistíma hennar og
það hvort hægt sé að senda hana, fást með því að velja
opnunarlykil og ýta á
.