Stjórnandi forrita
Ýttu á
og veldu
Forrit
>
Stj. forrita
. Þú getur sett upp
tvenns konar forrit og hugbúnað í tækinu:
•
J2ME
TM
forrit byggt á Java
TM
tækni með endingunni
.jad eða .jar (
).
•
Önnur forrit sem henta Symbian-stýrikerfinu (
).
Uppsetningarskrárnar hafa endinguna .sis. Aðeins skal
setja upp hugbúnað sem er sérstaklega hannaður fyrir
Nokia N95. Hugbúnaðarframleiðendur vísa stundum til
opinbers heitis þessarar vöru: Nokia N95-1.
Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri
tölvu, hlaða þeim niður þegar vafrað er og fá þær sendar
sem margmiðlunarboð, sem tölvupóstsviðhengi eða með
Bluetooth eða innrauðu tengi. Þú getur notað Nokia
Application Installer í Nokia Nseries PC Suite til að
setja upp forrit í tækinu. Ef þú notar Microsoft
Windows Explorer til að flytja skrá skaltu setja
skrána á samhæft minniskort (staðbundinn disk).